Skip to content

Réttindaskóli Unicef

Laugarnesskóli hlaut viðurkenningu sem réttindaskóli Unicef árið 2017 og var sú viðurkenning endurnýjuð haustið 2019.

Markmið Réttindaskóla er að byggja upp lýðræðislegt umhverfi með því að rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi. Með þetta að markmiði eru grunnforsendur Barnasáttmálans útgangspunktur fyrir allar ákvarðanir í skóla- og frístundastarfi auk þess sem þær endurspeglast í samskiptum barna, ungmenna, kennara, frístundaráðgjafa og annarra starfsmanna.

Hér má lesa nánar um Réttindaskóla Unicef.