Foreldrar bregða á leik í stærðfræði
Helen Símonardóttir kennari við Laugarnesskóla fékk styrk fyrir verkefninu frá Verkefna- og námsstyrkjasjóði KÍ veturinn 2012 – 2013.
Markmið með verkefninu er eins og nafnið gefur til kynna að foreldrar leiki við börn sín í stærðfræði. Með þessum leikjum er ætlunin að styrkja talnaskilning barns ykkar sem er grunnur að öllu stærðfræðinámi í framtíðinni og efla jákvætt viðhorf til stærðfræði.
Fyrirkomulag
Foreldrar læra spil og leiki af myndböndum sem sett hafa verið á youtube.com. Foreldrar spila spil vikunnar með barni sínu a.m.k. í 15 mín á dag fimm daga vikunnar og kvitta í spilahefti að spili loknu.Heimilin þurfa að eiga tvo spilastokka og 6 teninga. Foreldrar verða einnig að hafa aðgang að tölvu eða snjalltæki til að horfa á myndband á youtube.com. Annað er foreldrum að kostnaðarlausu.
Glærur frá kynningarfundi um verkefnið má skoða hér.
1. vika Minnisspil – aukaspil eða aðrar útfærslur Summan 20 – Tía!
2. vika Slétt tala og oddatala, mismunur
3. vika Tugakapall – samlagning leggja saman þrjú spil sem gefa 10, 20 eða 30
4. vika Frádráttarspil með teningum – frádráttur
5. vika Hjarta – samlagning, frádráttur, margföldun
6. vika Þrír í röð – samlagning eða margföldun
7. vika Þrjú þúsund – Stigatafla (PDF skjal) – samlagning
8. vika Hæsta talan – sætiskerfið, hundrað, tugur, eining
9. vika Tvöföldun eða þreföldun – margföldun
10. vika Fjórir í röð – samlagning og margföldun