Íslenskuverðlaun unga fólksins í Reykjavík bókmenntaborg Evrópu

Urður Ása Jónsdóttir í 6.S var í gær sæmd verðlaunum við hátíðlega athöfn í Hörpu. Venjulega eru Íslenskuverðlaun unga fólksins afhent á degi íslenskrar tungu í nóvember en í ár þurfti að fresta þeirri athöfn sem fór eins og áður segir fram í gær.
Í umsögn sem fylgir tilnefningu Urðar frá skólanum kemur fram að:
Urður Ása hefur sýnt fram á mikla færni í íslensku, í máli og riti. Hún notar vandað málfar og orðaforða sem er á við fullorðna manneskju. Skilningur hennar er framúrskarandi og á hún auðvelt með að lesa á milli línanna, setja sig í spor annarra og útskýra fyrir öðrum. Hún kemur vel fram og á auðvelt með að nota málfar sitt í að rökstyðja mál sitt vel og vandlega auk þess sem hún notar fallega íslensku í samskiptum við samnemendur og starfsfólk skólans. Hún hefur mikinn metnað í að efla orðaforða sinn enn frekar og hvetur jafnframt vini og bekkjarfélaga til hins sama.
Við óskum Urði innilega til hamingju með verðlaunin.