Skip to content

Möppudagur 17. maí

Mánudagurinn 17. maí er möppudagur í Laugarnesskóla. Þann dag lýkur kennslu kl. 12:30. Hefð er fyrir því í Laugarnesskóla að nemendur velji úr verkefnum sínum og setji sum þeirra í möppur sem hafðar eru til hliðsjónar í foreldraviðtölum.

Nemendur sem eru skráðir í Laugarsel eða Dalheima fara þangað aðeins fyrr en venjulega á mánudag, en aðrir nemendur fara heim er kennslu lýkur.