Skip to content

Möppudagur á morgun í Laugarnesskóla

Fimmtudagurinn 4. febrúar er möppudagur í Laugarnesskóla. Þann dag lýkur kennslu kl. 12:30. Hefð er fyrir því í Laugarnesskóla að nemendur velji úr verkefnum sínum og setji sum þeirra í möppur sem hafðar eru til hliðsjónar í foreldraviðtölum.

Nemendur sem eru skráðir í Laugarsel eða Dalheima fara þangað aðeins fyrr en venjulega á morgun, en aðrir nemendur fara heim er kennslu lýkur.

Fimmtudaginn 11. febrúar verða svo foreldraviðtöl, en þá koma nemendur í skólann ásamt foreldrum og hitta umsjónarkennara.