Starfsdagur mánudaginn 16. mars
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnarlaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að skipulagningu skólastarfs miðað við ofangreindar ákvarðanir. Þegar hefur verið ákveðið að mánudagurinn 16. mars verði starfsdagur í leik- og grunnskólumá höfuðborgarsvæðinu til þess að stjórnendur og starfsmenn leik- og grunnskóla geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.
Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir að fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn, m.a. á heimasíðum sveitarféleganna og heimasíðum leik- og grunnskóla. Þá eru í undirbúningi sameiginlegar leiðbeiningar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um frístundaheimili, íþróttastarf, íþróttamannvirki, tónlistarskóla, skólahljómsveitir og aðrar tómstundir barna.